Davis® námstæknikerfið hefur það markmið að fyrirbyggja lesblindu og önnur
sértæk námsvandamál. Þetta er fjögurra ára prógram, ætlað fyrir 5-8 ára börn.
Með kerfinu er börnunum gefin námstækni og verklag sem auðveldar þeim að einbeita sér að skipulögðu námi.
Það er einfalt í notkun og fellur að því námsefni og þeirri skipan sem fyrir er í hverjum skóla. Náist markmiðin
leiðir kerfið til þess að börnin í bekknum verða ánægðari, samheldni verður meiri og námsárangur batnar án tillits til
þess hvaða námsaðferðir henta hverjum og einum.
Kerfið var tilraunakennt á San Francisco svæðinu 1994-1999 og urðu helstu niðurstöður þær að:
* engin þörf var fyrir sérkennslu þar sem kerfið
var notað
* það nýttist öllum nemendum, burtséð frá námsstíl
* læs börn bættu verulega við almennan málþroska,
en stirðari náðu góðu valdi á lestri
* kerfið auðveldaði kennurum verkstjórnina
* bráðger börn fundust mun fleiri í tilraunabekkjunum
en í öðrum bekkjum
Fyrstu fjögur árin í skólagöngunni voru tilraunabörnunum þannig farsæl og væntanlega hafa viðhorf þeirra til náms og
skóla mótast fyrir lífstíð.

Flýtilyklar
Davis® námstækni
Fréttir
Deildin
Leita
Áhugaverðir höfundar
Krækjur
Greinar
Um lesblindu:
Að horfa á hljóð og hlusta á mynd
Er lesblinda
meðfædd?
Uppeldis- og skólamál - greinar
Umbætur í skólamálum
Skólastefna
Hlutverk grunnskólans
Mannlegt eðli og atgervi
Fovarnir
Matur er mannsins megin
Skólamál
Skólinn og forvarnir
NVR Tilraunaverkefni nemendaverndarráðs
Sérkennsla
Proposal
Skólasýn
Blettatígur
Aukin gæði skólastarfs
Myndbönd/viðtöl
Væntanlegt



